Eigandinn
Umsjónarmaðurinn
Ráðgjafinn
Þjónustuaðilinn
Húsvörðurinn
Notandinn
Fjármálastjórinn
Tölvudeildin
Orkuráðgjafinn
Verktakinn
Vélstjórinn
Söluaðili búnaðar
Hvernig byrja ég?
    
Fjármálastjórinn
Fær yfirsýn yfir helstu fjárhagslegu stærðir
Fjármálastjórinn hefur margskonar gagn af upplýsingum sem Stjórinn heldur utan um. Annars vegar hefur hann lista yfir innbú og tæki sem þarf að eignfæra í bókhaldi. Einnig getur hann haft yfirlit yfir rekstur eignarinnar og arðsemi með sérstöku rekstrarlíkani Stjórans. Hann getur einnig notað "reikningssamþykktar" einingu til að samþykkja alla reikninga sem byggjast á verkbeiðnum úr kerfinu. Hægt er að gera athugasemdir, hafna reikningum og breyta þeim. Rekjanleiki er einfaldur á öllum verkum, efni eða tímavinnu sem fellur á verkið. Í Stjóranum eru einnig greiningarskýrslur þar sem sést í hvað kostnaður hefur farið t.d. stjórnun, viðhald, rekstur o.s.frv. en þetta krefst flokkunar á bókhaldslyklum, sem einnig er gert í Stjóranum. Dæmi um ávinning fyrir fjármálastjóra :
  • Fær yfirlit yfir eignaskrá
  • Getur gert greiningarskýrslur
  • Getur gert könnun á arðsemi eignar
  • Innkaupayfirlit - líftímaáætlun
  • Innlestur í afskriftabókhald fyrir tæki og búnað
  • Reikningssamþykktir úr verkefnum þjónustuaðila
  • Samanburður á fjárhagsáætlun og áföllnum raunkostnaði

Arðsemisútreikningar og reikninga-samþykktareining
""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark