Home Company Programs News Contact     
   
Municipality
Real-estate company
Computer Department
Service provider
Energy company
Contractors
Transmission Energy Company
Manufacturing company
City of Reykjavik
Consultant
Oil distribution company
State organisation
    
Þ.G. Verktakar er eitt af stærstu verktakafyrirtækjum. Þeir byggja m.a. íbúðablokkir og selja íbúðirnar. Til að vel fari er mikilvægt að allt ferlið sé eins skipulagt og mögulegt er og gæðin séu í lagi. Allir sem þekkja til byggingastarfsemi vita að fjölmargir þættir þurfa að samhæfast og mikivægt að hver liður sé unnin af mikilli fagmennsku áður en næsti áfangi hefst. ÞG hafa innleitt Stjóralausnir til að hafa stjórn á gæðaferlinu. Úttektir eru framkvæmdar með gátlistum fyrir mismunandi verkþætti. Frávik eru skráð og viðkomandi aðilar fá frávikin til lagfæringar. Greiðslur frá íbúðakaupanda eru gjarnan skilyrtar því að búið sé að ganga frá tilteknum frávikum. Hér koma eins og áður sagði margir aðilar við sögu eins og málari, pípari, rafvirki og múrari. Hin einstöku frávik geta átt við allar faggreinar. Gæðastjórninn þarf að halda utan um öll þessi atriði og jafnframt þarf hann að þekkja afhendingardaga og síðast en ekki síst greiðsluáætlun. Fjármálastjóri eða gæðastjóri geta á einfaldan hátt fengið skýrslu úr Stjóranum sem sýnir yfirlit íbúða, óafgreidd frávik og greiðsludaga. Þannig er hægt að forgangsraða vinnu og eftirfylgni. Sömuleiðis þarf að fylgjast með að greiðslur séu inntar af hendi og því mikilvægt að hafa tengsl við fjárhagskerfið, sem sendir jafnóðum til Stjórans upplýsingar um innborganir aðila.
  • Kaupsamningaskráningu og greiðsluáætlanir
  • Nýbyggingar og gæðaeftirlit
  • Skoðanir, úttektir og frávikaskráningu
  • Tengsl við fjárhagskerfi, innborgun á samninga
  • Verkstýringu verkbeiðna til undirverktaka

""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark