|
|
|
|
|
Orkuveita Reykjavíkur með öfluga aðstöðustjórnun
|
|
Orkuveita Reykjavíkur sér um öflun og dreifingu á heitu vatni, köldu vatni og raforku á höfuðborgarsvæði og í nágrannasveitarfélögum ásamt gagna- og fráveitu. Orkuveitan á yfir 1500 mannvirki ef með eru talin skrifstofubyggingar, spennistöðvar, dælustöðvar og dreifivirki. Orkuveitan hefur valið þá leið að fela einni deild umsýslu allra sinna fasteigna. OR fasteignir sem er umsýsluaðili eiganda gerir rekstraráætlanir og framkvæmdaáætlanir og sækir fé til eiganda hvers mannvirkis til viðhalds. Hvert svið greiðir kostnað við þau mannvirki sem heyra undir það. Þetta krefst töluverðrar umsýslu. Á þennan hátt fæst einnig aukin kostnaðarvitund aðila þar sem húsnæði, búnaður o.fl. kostar sviðin tiltekna fjármuni. Einnig leigir tölvudeildin allan tölvubúnað til sviðanna. Af þessu leiðir að öll mannvirki, rými, búnaður og staðsetning hans er skráð og eyrnamerkt hverju sviði. Sömuleiðis er flutningur búnaðar skráður á hverjum tíma. Til að einfalda þessa vinnu nota menn þráðlausar lófatölvur (Pocket PC) þar sem hægt er að velja tæki í rými með strikmerki, velja nýtt rými við flutning o.s.frv
|
-
Áætlanagerð og skiptitölur
|
|
-
Búnaður, staðsetning hans og kostnaður
|
|
-
Leigulíkan, leiga og kostnaðarskipting
|
|
|
|
-
Skráningu eigna, flokkun og leigutaka
|
|
-
Teikningar, ljósmyndir og skjöl
|
|
-
Tölvubúnaður, leigutaka og kostnaður
|
|
|
|
|
|
|