|
|
|
|
|
|
|
Þjónustusamningar, áætlanir, viðbragðstími og þjónustukröfur eru skráðar í Stjórann til að fylgjast með stöðu samninga og einstakra verkefna. Þjónustuaðilinn fyllir út gátlista, skrifar athugasemdir um einstaka kerfishluta og gefur einkunnir sem virkja aðgerðir í samræmi við viðbúnaðarstig af hálfu umsjónaraðila eignar. Einnig er hægt að skrá tíma, efnisnotkun o.fl. inn á þjónustubeiðni. Þjónustuaðilinn fær þjónustubeiðnir úr kerfinu sem tilheyra þjónustusamningi með sjálfvirkum hætti sem og tölvupóst sem birtir viðkomandi beiðni. Úrbótaferli er skilgreint fyrir þau atriði sem fá athugasemdir eða einkunn sem gefur til kynna að eitthvað þurfi að aðhafast. Hægt er að fylgjast með stöðu úrbótaferlis á eignavef eða verkstýringavef. Þjónustuaðilinn sér hvaða mannaflaþörf er á næsta ári, mánuði o.s.frv. Einnig getur hann haldið utan um gæðaferla sbr. stýringu á verklýsingum, prófgráðum, endurnýjun á réttindum starfsmanna o.fl.
Dæmi um ávinning þjónustuaðila :
|
-
Auðveld yfirsýn yfir kostnað og verkefni
|
|
-
Dagatal sýnir hvenær framkvæma skal einstök verkefni
|
|
-
Mannaflaskema sýnir mannaflaþörf og starfssvið
|
|
-
Réttindaskráning - hver má gera hvað, hvenær réttindi renna út
|
|
-
Skilgreint úrbótaferli og eftirfylgni
|
|
-
Þjónustusaga einstakra kerfishluta
|
|
-
Þjónustusamningar halda utan um alla þjónustuþætti
|
|
|
|
|
|
|