Eigandinn
Umsjónarmaðurinn
Ráðgjafinn
Þjónustuaðilinn
Húsvörðurinn
Notandinn
Fjármálastjórinn
Tölvudeildin
Orkuráðgjafinn
Verktakinn
Vélstjórinn
Söluaðili búnaðar
Hvernig byrja ég?
    
Ráðgjafinn
Vinnur beint á gagnasafni eiganda
Ráðgjafinn getur nú boðið eigendum mannvirkja að safna upplýsingum um skoðanir, viðhaldsáætlanir, verklýsingar, magntölur, teikningar og tilboðsgögn á einn stað sem eigandi hefur aðgang að. Oft er þörf á aðgangi að þessum upplýsingum og stundum er misbrestur á að þeim sé haldið til haga. Ráðgjafinn getur, samhliða hefðbundinni ráðgjöf, séð um viðhald skráningar á mannvirkjahlutum bæði hvað varðar ytra byrði og húskerfi. Hægt er að beita aðgangsstýringunni þannig að sitthvor ráðgjafinn getur séð um að uppfæra mismunandi gögn eftir byggingahlutum. Hér er hægt að stofna byggingahluta, skrásetja skoðanir, setja upp áætlanir og framkvæma kostnaðareftirlit. Ráðgjafinn getur einnig annast einföld útboð f.h. verkkaupa með því að senda magntölu- og verklýsingaskrá til nokkurra verktaka með verkbeiðnum. Dæmi um ávinning ráðgjafa :
  • Einfalt eftirlit og stýring á framkvæmdum
  • Gagnasöfnun fyrir eiganda einfölduð
  • Gerð útboðsgagna og samanburður tilboða ávallt skjalfest
  • Gerð viðhaldsáætlana og eftirfylgni þeirra
  • Skil á skýrslum, úttektum o.s.frv.
  • Skoðanir mannvirkja á einum stað
  • Uppfærsla teikninga, skjala í gagnasafni eiganda o.s.frv.
  • Verklýsingar geymdar í gagnasafni eiganda

Skoðanaskýrslur Áætlanagerð Líftímaáætlun
""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark