|
|
|
|
|
Skilvirkt flæði upplýsinga milli kerfa
|
Mikilvægur hluti af rekstri hvers fyrirtækis er að hafa gott kostnaðar og tekjuyfirlit á hverjum tíma. Stjórinn er ekki bókhaldskerfi en býður hins vegar upp á mikla möguleika við að nýta bókhaldsgögn. Það er yfirleitt útfært þannig að sett er upp tenging við bókhaldskerfi viðskiptavinar. Úr því er lesið reglulega helstu bókhaldsvíddir, verkbókhaldslyklar, starfsmannalistar, vörunúmer o.s.frv. allt eftir því hvar áherslurnar liggja. Þessi gögn eru síðan greind og staðsett rétt í Stjóranum. Síðan tekur við innlestur á bókhaldsfærslum sem lyklaðar eru á hefðbundnar víddir bókhaldssins en einnig á sértæka hluti í Stjóranum, svo sem skipurit, viðföng, verkbeiðnir og áætlanir. Ofan á þetta eru síðan til mikið magn af skýrslum, greiningargröfum og vinnslum.
Á undanförnum árum hefur sömu hugmyndafræðinni verið beitt í tengslum við margs konar bókhaldskerfi svo sem Concorde, Navision, Axapta, Agresso, Oracle Business Suite, DK og TOK+
|
-
Bókhaldsvíddir svo sem bókhaldslyklar, málefni, verkefni, kostnaðartegundir speglað úr bókhaldi
|
|
-
Verkbókhaldslyklar skilgreindir í Stjóranum eða speglaðir úr bókhaldi
|
|
-
Greining bókhaldslykla niður í rekstur, viðhald, tekjur, leigutekjur o.s. frv.
|
|
-
Staðsetning verkbókhaldslykla á rétta staði í kerfinu, aðgangsstýring
|
|
-
Sjálfvirkur innlestur bókhaldsgagna inn í Stjórann
|
|
-
Raunkostnaðarstaða á verkbeiðnum til samanburðar við áætlaðan kostnað
|
|
-
Raunkostnaðarstaða á áætlunum
|
|
|
|
-
Mikið safn kostnaðar og greiningarskýrsla
|
|
-
Reikningssamþykktir og yfirfærsla samþykktra reikninga yfir í bókhaldskerfi annars aðila
|
|
|
|
|
|
|