Eigandinn
Umsjónarmaðurinn
Ráðgjafinn
Þjónustuaðilinn
Húsvörðurinn
Notandinn
Fjármálastjórinn
Tölvudeildin
Orkuráðgjafinn
Verktakinn
Vélstjórinn
Söluaðili búnaðar
Hvernig byrja ég?
    
Umsjónarmaðurinn
Yfirlit yfir kostnað og verkefni á einum stað
Það sem skiptir mestu máli fyrir umsjónarmann (facility manager) eignar er að hafa yfirlit yfir öll verkefni sem framkvæma þarf fyrir eignina og einfalt verkfæri fyrir kostnaðareftirlit. Stjórinn býður upp á verkfæri til að fylgjast með þjónustusamningum, tíðnistýrðum eða ástandstýrðum verkefnum. Hægt er að skilgreina verkefnin þannig að þau virkjast sjálfvirkt á tilteknum tíma eða við tilteknar aðstæður (t.d. út frá logskrá húskerfa). Þá verður til verkbeiðni á þjónustuvef og þjónustuaðili fær tölvupóst. Með tengslum við bókhald og innleiðingu á tilteknum verkferlum við útgáfu verkefna og skráningu á kostnaði með notkun verkbeiðna er hægt að fá kostnaðarskýrslur yfir raunkostnað, áætlaðan kostnað og fyrirfram samþykktan kostnað. Sömuleiðis hægt að fá greiningarskýrslur sem sýna kostnaðarskiptingu einstakra þátta. Dæmi um ávinning fyrir umsjónarmann fasteignar eru:
  • Athugasemdir notenda eða leigjenda
  • Gerð einfaldra útboðsgagna
  • Greiningarskýrslur - í hvað fór kostnaður, hvaða kerfi eru dýrust
  • Kostnaðareftirlitsskýrslur
  • Tölfræði verkefna
  • Yfirlit yfir einstök verkefni
  • Yfirlit yfir stöðu allra þjónustusamninga
  • Yfirlit yfir stöðu úrbótaferlis
  • Yfirlit yfir úrbætur og athugasemdir þjónustuaðila

Yfirlit yfir frávikafærslur og skjalaaðgangur
""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark