STJÓRALAUSNIR
Grunnkerfi
Eignavefur
Búnaður og listaverk
Tölvubúnaður
Farartæki, vegir ...
Línur og tengivirki
Samningar
Verk- og fjárhagsbókhald
Áætlanagerð
Þjónustukerfi
Verkefnavefur
Orkuskráning
Tenging við önnur kerfi
    
Tölvubúnaður
Þjónusta við tölvur og búnað verður markvissari
Tölvudeildin skráir allan sinn búnað þ.e. tölvur, prentara, skjái, netbúnað o.fl. og staðsetur búnað í einstökum rýmum eignarinnar. Hægt er að skanna windows netkerfi til að leita uppi tölvur á netinu og skrá þær ásamt upplýsingum um þær, sjálfvirkt í kerfið. Einnig er hægt að skanna gegnum netið einstakar tölvur og hvaða hugbúnaður er uppsettur. Sömuleiðis er hægt að halda utan um hugbúnaðarleyfi, hvenær þau renna út o.s.frv. Stjórinn getur einnig haft samskipti við Microsoft SMS gagnagrunn og þannig stofnað tölvur og búnað. Þjónustukerfi Stjórans er tilvalið til að taka á móti beiðnum, kvörtunum og útköllum til að þjónusta þessa kerfishluta og fá þannig nákvæma sögu og upplýsingar. Þeir sem hafa IP símkerfi hafa einnig möguleika á tengingu við Stjórann og til dæmis séð allan búnað sem tengjast tiltekinni persónu um leið og hún hringir á þjónustuborð. Dæmi um ávinning tölvudeildar :
  • Gott yfirlit yfir hugbúnaðarleyfi
  • Gott yfirlit yfir innkaup, búnað og staðsetningu
  • Lausnarbanki - þekktar villur og lausnir
  • Líftímaviðhald - væntanleg innkaup
  • Samanburð á uppsettum forritum og leyfum
  • Sjálfvirkur innlestur búnaðar t.d. frá birgjum
  • Tenging við IP símakerfi - þjónustuborð
  • Tilkynningar ef leyfi eru að renna út
  • Þjónustusaga fyrir tölvu og hugbúnað

Verkefni í gangi hjá tölvudeild, yfirlit yfir búnað - skýrslur um tölvur
""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark