|
|
|
|
|
|
|
Verkvangur er ráðgjafafyrirtæki á tæknisviði. Verkvangur hefur í áratugi sérhæft sig í viðhaldi fasteigna og þróað gæðakerfið Viðhaldsvörð sem tryggir árangur sé því fylgt eftir. Tveir af þáttum Viðhaldsvarðar eru Lagnavörður og Orkuvörður en Verkvangur hefur um áratuga skeið vaktað notkun á heitu vatni hjá húsfélögum og fyrirtækjum. Verkvangur notar Stjóralausnir til að sinna þessu hvorutveggja. Viðhaldsvörður gengur út á að vakta mannvirki, gera langtíma viðhaldsáætlanir, framkvæma reglulegar skoðanir á ytra byrði og setja þá áætlunarliði af stað sem skoðanir og útektir gefa til kynna að þurfi að framkvæma. Með reglubundnu viðhaldi er hægt að ná niður kostnaði og heldur ráðgjafinn utan um það. Lagnavörður gengur út á úttektir og vöktun á lagnakerfum mannvirkisins. Það felst í að taka út kerfin, skrá reglulega stöðu orkumæla og aðra mæla lagnakerfanna. Þannig næst regluleg vöktun og fljótlega er hægt að sjá ef eitthvað fer úrskeiðis. Einnig er hægt að bera saman við önnur mannvirki og kerfin eru stillt þannig að sem minnsta orku þurfi til að þjóna notendum mannvirkisins
|
-
Skráning á mannvirkjahlutum, húskerfum
|
|
-
Skráning á magntölum og lykilstærðum
|
|
-
Skráning á framkvæmdasögu
|
|
|
|
-
Áætlanagerð og eftirfylgni
|
|
-
Orkuskráning og orkuvöktun
|
|
-
Samanburðarskýrslur fyrir orkunotkun
|
|
-
Tenging og innlestur úr Vista orkusjá
|
|
|
|
|
|
|