STJÓRALAUSNIR
Grunnkerfi
Eignavefur
Búnaður og listaverk
Tölvubúnaður
Farartæki, vegir ...
Línur og tengivirki
Samningar
Verk- og fjárhagsbókhald
Áætlanagerð
Þjónustukerfi
Verkefnavefur
Orkuskráning
Tenging við önnur kerfi
    
Línur og tengivirki
Turnar, spennar, aflrofar...
Sú útfærsla af Stjóranum sem notuð er í tengslum við orkuflutningskerfi er kölluð T&D (Transmission and distribution). Þar er aðaláherslan lögð á skráningu viðfanga sem tengist þeim rekstri mest, þ.e. spennistöðvar og flutningslínur. Möguleiki er lika að hvert tæki fái úthlutað svonefndum KKS kóða sem er alþjóðlegur staðall sem þróaður hefur verið fyrir hvers konar orkuframleiðslu og orkuflutningsbúnað. Önnur sérkenni á þessum kerfishluta er áhersla á notkun hættulegra efna eins og SF6 gass, mælingar á kerfistruflunum, öryggisskoðanir til að uppfylla löggildingu og frammistöðuskýrslur flutningsnetsins
  • Skráning og KKS kóðun spennistöðva og búnaðar þeirra
  • Skráning og KKS kóðun háspennulína og turna þeirra
  • Innlestur KKS kóða úr AutoCAD einlínuritum
  • KKS leitargluggi á eignavef og í Windows
  • RCM skráning (áhættugreining)
  • SF6 gas - áfylling, rýrnun þ.e. bókhald o.s.frv.
  • Skráning straumleysismínútna
  • Gæðastýring á rofheimildum
  • Greiningar á aldri búnaðar, niðurtíma, kostnaði, tegundaskiptingu
  • Frammistöðuskýrslur

"70 milljarða króna flutningskerfi Landsnets að stofnverði inniheldur 66 tengivirki og um 3000 km af háspennulínum. Þessar eignir mynda raforkuflutningskerfi Íslands og eru staðsettar um land allt. Innleiðing Stjórans hefur stuðlað að markvissari skráningu, uppfærslu og aðgangi grunnupplýsinga um flutningsvirki Landsnets og eru nú þessar upplýsingar allar á einum stað.Þessi eignaskrá hefur umbylt aðgengi að gögnum og mun í framtíðinn væntanlega mynda beinagrind fyrir helstu verk, gæða og öryggisferla okkar. Tenging við bókhaldskerfi fyrirtækisins mun auðvelda virkt kostnaðareftirlit/vitund þar sem unnt er á auðveldan hátt meðal annars að fá yfirsýn stöðu verkefna og áfallin kostnað á flutningsvirki og frá degi til dags. Stjórinn er okkur mikilvægt tæki til að byggja okkur upp upp stöðugt verðmætari lykiltölugrunn. "
Árni Stefánsson, tækni og eignastóri Landsnets
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark