|
"Olíudreifing ehf hefur notað stjóralausn frá LH-tækni í nokkur ár og hefur það komið að góðum notum í fjölbreyttum rekstri fyrirtækisins. Við erum með allar okkar eignir skráðar inn í kerfið ásamt eignum stærstu viðskiptavina okkar og nýtum okkur þá möguleika sem það hefur upp á að bjóða; Allar verkpantanir og frávikatilkynningar eru skráðar í verkbókhaldi kerfisins og tengjast eignunum sjálfkrafa. Áætlanir um framkvæmdir og viðhald, fyrirbyggjandi og tilfallandi, eru skráðar í kerfið og tengjast eignunum og verkbókhaldinu. Kostnaður skráist svo á verkpantanirnar og þar með eignirnar, sem gerir allt kostnaðareftirlit og greiningu á kostnaði einfalt og skilvirkt. Stærstu viðskiptavinir okkar geta sótt reikninga á netinu og bókað beint inn í bókhald sitt, en það flýtir mjög öllu ferli reikninga inn í bókhaldið.
Í heildina litið þá hefur stjóralausnin auðveldað okkur allt eftirlit, áætlanagerð og sparað útprentun á öllum fylgiblöðum með reikningum þar sem viðskiptavinirnir skoða það á netinu.
"
|
|
Auður Harðardóttir, fjármálastjóri Olíudreifingar
|
|