|
|
|
|
|
Lærum af reynslunni
|
|
Sagt hefur verið að slæm áætlun sé betri en engin. Þannig gefst kostur á að bera saman markmið við raunveruleikann og draga ályktanir af reynslunni.
Áætlanagerð er einn mikilvægasti þátturinn í rekstri og viðhaldi eigna. Um leið og hún er mat á útgjöldum er hún oft ákvörðun um framkvæmdir og tímasetningu þeirra. Jafnframt er gjarnan litið á ákveðnar áætlanir (fjárhagsáætlun) sem heimild til útgjalda rekstrartímabils. Í Stjóranum er hægt að vinna áætlun í þeirri nákvæmni sem hentar hverju sinni. Góð yfirsýn fæst þar sem áætlanir eru skoðaðar fyrir hvern málaflokk fyrir sig, eftir verknúmerum, samantekt fyrir skilgreindar eignir, áætlun hverrar eignar, hvers viðfangs o.s.fr. Með tengingu við fjárhagsbókhald gefst kostur á raunverulegri eftirfylgni áætlana þar sem auðvelt er að færa verkþætti milli ára ef raunkostnaður stefnir út fyrir útgjaldaheimild.
|
-
Gott yfirlit yfir verkefni ársins
|
|
-
Samantektir eftir eignahlutum, eignum, eignaflokkum, málaflokkum, verknúmerum o.fl.
|
|
-
Markviss eftirfylgni með samanburði við raunkostnað
|
|
-
Reglubundin afgreiðsla frávika og óska í áætlun
|
|
-
Einfalt samspil ársáætlunar og langtímaáætlunar
|
|
|
|
|
|
|