Sveitarfélag
Fasteignafélag
Tölvudeild fyrirtækis
Þjónustuaðili
Veitufyrirtæki
Verktakafyrirtæki
Orkuflutningsfyrirtæki
Framleiðslufyrirtæki
Reykjavíkurborg
Ráðgjafi
Olíudreifingarfyrirtæki
Ríkisstofnun
    
Framleiðslufyrirtæki
Verkstýring og fyrirbyggjandi aðgerðir
Mjólkursamsalan er langstærsti framleiðandi mjólkurafurða á Íslandi og hefur þar af leiðandi viðamikinn framleiðslubúnað til þess. Í tæknideild MS starfa tugir tæknimanna og sinna viðhaldi og uppsetningu á búnaði til framleiðslunnar. Í slíkum deildum er mikilvægt að fylgjast með einstökum búnaði, krítiskum þáttum í framleiðslulínum, viðhafa gott gæðakerfi, áætlanir um fyrirbyggjandi viðhald o.fl. Einnig er mikilvægt að halda utan um bilanasögu og niðurtíma og samhliða uppfylla öryggiskröfur og löggilda skráningu þar um. Í slíkum framleiðslulínum er gjarnan fullkominn tækjabúnaður sem inniheldur teljara um notkun búnaðar sem getur verið fjöldi klukkustunda, snúninga o.s.frv. Framleiðandi setur gjarnan kröfur um viðhald eftir tiltekin fjölda snúninga, klukkustunda o.s.frv. Stjórinn les slík merki og gefur út verkbeiðni til tæknideildar þegar tilteknum mörkum er náð.
  • Áætlanir um fyrirbyggjandi viðhald
  • Verkbeiðnir fyrir öllum verkefnum
  • Tölfræði og lykiltölur
  • Skráningu framleiðslulínu, búnaðar og hluta
  • Mannvirki, skoðanir og áætlanir
  • Íhlutir og varahlutir
  • Bilanir og niðurtíma

Höfuðstöðvar MS, Bitruhálsi
""
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark