Ein kunnasta aðferð hagfræðinnar við ákvarðanatöku er að hámarka innri vexti fjárfestingar. Vegna þess hversu margþættar og flóknar vatnsaflsvirkjanir eru hefur hins vegar ekki reynst unnt að beita þessari aðferð við leit að hagkvæmustu virkjunarkostum. Hefðbundar lausnaraðferðir hafa ekki ráðið við vandamálið. Í stað þess hefur sú leið yfirleitt verið farin að skoða ákveðna grunnþætti virkjunar, svo sem vídd vatnsvega eða hæð stífla, sem óháðar breytur og ákvarða hverja fyrir sig, oft með mis göfug markmið að leiðarljósi.
Á undanförnum árum hafa verið þróaðar nýjar aðferðir við lausn á flóknum stærðfræðilegum vandamálum. Ein sú vinsælasta nefnist erfðaalgrím (Genetic Algorithm). Hún leitar aðstoðar náttúrunnar og líkir eftir hinu fræga þróunarlögmáli Darwins sem segir að þeir hæfustu lifa af. Með hjálp Darwins er nú loksins hægt að nýta sér núvirðisaðferðir hagfræðinnar við virkjanahönnun. Í því skyni hefur Windows forritið Hydra verið þróað.
Nafnið er tekið úr grísku goðafræðinni þar sem skrifað er um bardaga Herkúlesar við marghöfða vatnaskrímslið Hydru. Í hvert sinn sem Herkúles hjó höfuð af drekanum uxu jafnharðan tvö ný í staðinn. Fljótlega átti Herkúles í höggi við andstæðing með yfir hundrað höfuð. Að lokum fékk hann hugmynd um það hvernig hann ætti að fara að því að ráða niðurlögum drekans. Hann fékk frænda sinn Iolaus að nafni í lið með sér. Í hvert sinn sem Herkúles hjó af höfuð hljóp frændi hans til og lokaði sárinu með því að brenna í það með logandi kyndli. Þetta var erfiðisvinna, en höfuðin uxu ekki aftur og að lokum lá Hydra í valnum. Það er okkar mat að nýja aðferðafræðin sé hentug leið, í anda Herkúlesar, til að leysa hið "marghöfða" vandamál sem hagkvæm virkjanahönnun er.
Hugbúnaðurinn Hydra byggist í stórum dráttum upp á eftirfarandi hátt. Notandinn hefur sitt eigið safn mannvirkja sem hann getur þróað að vild. Mannvirkin eru lesin inn í Hydru og virkjanakostir byggðir upp með því að púsla mannvirkjunum saman. Hydra finnur síðan bestu tilhögun miðað við gefnar forsendur.
Helstu kostir:
o Hreinn samræmdur flötur við núvirðisaðferðir hagfræðinnar
o Hagkvæmasta lausn fundin í einu skrefi (Global Optimisation) í stað margra minni skrefa (Local)
o Unnt að besta staðsetningar á mannvirkjum
o Skilar nákvæmri útlistun á hverjum kosti, s.s. kostnaðaryfirliti, magntölum og helstu kennistærðum
o Auðvelt að uppfæra reikninga ef forsendur breytast
|