Undanfarinn mánuð hefur ICEconsult unnið að Pilotverkefni með Almennu Verkfræðistofunni.
Verkefnið snýst um að setja saman þjónustuviðmót fyrir Almennu Verkfræðistofuna sem hún getur nýtt til að þjónusta sína viðskiptavini.
Einingar þjónstuviðmóts Búnaðarskráning - sem heldur utan um allan búnað viðskiptavinar, hægt er að skrá þjónustuaðila, söluaðila, verð, setja inn mynd af búnaði og taka út yfirlitsskýrslur með upplýsingum um búnaðinn (t.d. fjölda og staðsetningu).
Orkuskráning - sem heldur utan um alla orkunotkun mæla viðskiptavinar. Hægt er að skoða alla orkunotkun mörg ár aftur í tímann (mælasagan fengin frá OR). Þá er hægt að fylgjast með því hvernig orkunýtingin er í dag miðað við gefin viðmið og meðaltal síðustu ára.
Magntöluskráning - sem heldur utan um magntölur, þjónustuaðila, söluaðila og efni innan valins rýmis. T.d. gólfefni, málningarnúmer, klæðningu ofl.
Gátlistar - sem Almenna Verkfræðistofan notar til að taka út fasteign viðskiptavinar. Þar eru öll atriði, sem tengjast viðhaldi, tekin saman, skráð og geymd. Hægt er að taka út skýrslur með yfirliti yfir þau atriði sem þarfnast lagfæringar á viðkomandi eign.
Að lokum Við hjá ICEconsult vorum spennt að fá að takast á við þetta verkefni og vinna að því með Almennu Verkfræðistofunni.
Við teljum að með þessu séum við búin að búa til heildrænan og öflugan pakka sem að Almenna Verkfræðistofan getur notað til að þjónusta viðskiptavini sína sem allra best.

|