Home Company Programs News Contact     
-

Undir lok árs 2009 var sú ákvörðun tekin að straumlínulaga ferli Stjórans og búa til sérstakan "Sveitarfélagapakka" sem inniheldur öll ferli og aðgerðir sem nýtast sveitarfélögunum.

Þegar búið var að ákveða að búa til þennan sérstaka pakka þá datt okkur einnig í hug að koma á laggirnar umræðuvettvangi fyrir þau sveitarfélög sem eru í okkar þjónustu. Þar sem þau geta hist, rætt saman um innri ferli, eigin rekstur og skipst á hugmyndum. Innan sveitarfélaganna er mikil þekking og reynsla en ekki er til neinn vettvangur þar sem umsjónarmenn fasteigna sveitarfélaga hittast og ræða um þessi mál sín á milli og deila með sér þessari þekkingu og reynslu.

Við buðum því 7 viðskiptavinum okkar, úr hópi sveitarfélaganna, á fundinn með okkur og báðum nokkra þeirra að kynna eigin ferli og sitja fyrir svörum.
Fundinn sóttu 2-3 fulltrúar frá hverju sveitarfélagi fyrir sig, frá Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Reykjanesi, Akranesi og Mosfellsbæ.

Efni fundar

-Ómar Þórdórsson kynnti þau verkbeiðnaferli sem hann notar innan Framkvæmda og eignasviðs Reykjavíkur
-Svanlaugur Sveinsson kynnti þau ferli Stjórans sem Hafnarfjörður notar á degi hverjum.
-Gunnlaugur B. Hjartarson og Björn H. Skúlason kynntu stuttlega nýjustu útgáfu Stjórans(version 10.0)
-Óli Jón Hertervik og Sighvatur Arnarson ræddu svo um notkun Stjórans á Gatnavef Reykjavíkurborgar og tæptu á helstu ferlunum sem Reykjavík notar.

Að kynningu lokinni fóru fram almennar umræður þar sem menn spurðu hvorn annan út í ýmis atriði og verklag og báru saman bækur sínar. Voru fundarmenn sammála um að þessi umræðuvettvangur væri mjög gagnlegur og lærdómsríkur þar sem umsjónarmenn eignasviða sveitarfélaga höfðu aldrei áður hist til að ræða sín mál og bera saman ferli, hugmyndir og aðferðir til reksturs fasteigna.

Niðurstaða

Á fundinum var sú ákvörðun tekin að annar fundur yrði haldinn um mitt árið 2010 og að sömu aðilar myndu sækja hann.
Á þeim fundi gefst umsjónarmönnum fasteigna annað tækifæri til að ræða saman og fara yfir sín mál en að auki verður farið nánar í þau ferli sem skilgreind hafa verið innan sveitarfélagapakkans og þau sýnd í Stjóranum (útgáfu 10).

Við viljum þakka umsjónarmönnum fasteignanna innan sveitarfélaganna fyrir þær hugmyndir og athugasemdir sem fram komu á fundinum en þær koma til með að styrkja Stjórann í þeirri þjónustu sem hann veitir sveitarfélögum og eru þær ómetanlegt innlegg í sveitarfélagapakka ICEconsult.



Til baka    
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark