Skeljungur hefur valið Stjórann til að halda utan um fasteignir sínar og ökutæki á stöðvum sínum um land allt.
Skeljungur kemur til með að nýta sér Stjórann til áætlunargerðar og verkstýringar auk þess sem að Skeljungur ætlar að nota ábendingar og verkbeiðnaferli Stjórans til utanumhalds og viðhaldssöguskráningar fasteigna og ökutækja. Að auki ætlar Skeljungur nota þá möguleika sem einingin "Reglubundnar skoðanir" innan Stjórans býður upp á.
Verkefnið er umfangsmeira en svo að farið verði nákvæmlega í það hér en þess má þó til gamans geta að Skeljungur kemur eingöngu til með að nota nýjustu útgáfu Stjórans til að keyra þessa verkferla.
Við hjá ICEconsult viljum því bjóða Skeljung velkomin í þann góða hóp kúnna sem við höfum á okkar snærum.
Á myndinni hér að neðan má sjá þá Ólaf Jónsson, Má Sigurðsson og Gunnlaug Hjartarson við undirritun samningsins.

|