Forsíða Fyrirtækið Forrit Fréttir Samband     
 
   
  Saga
  Starfsmenn
  Viðskiptavinir
    
ICEconsult var stofnað árið 1990. Í upphafi var stefnt að því að félagið þróaði hugbúnað fyrir sértæk svið innan verkfræðigeirans. Fyrstu hugbúnaðarlausnirnar voru lausnir fyrir hönnun háspennulína, ICEtow. Síðar kom lausn fyrir bestun vatnsaflsvirkjana, HYDRA.

ICEconsult byrjaði 1995 að þróa heildarlausn í stjórnun fasteigna og aðstöðustjórnun. Sú þróun hefur verið unnin í frjóu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði hérlendis og í Danmörku þar sem fyrirtækið rekur útibú. Niðurstaðan er öflug og heilsteypt lausn fyrir umsýslu eigna og búnaðar og þjónustu við þessi viðfangsefni nefnt Stjóralausnir. Styrkleiki hugbúnaðarins felst meðal annars í möguleikum á mismunandi sjónarhornum á sama viðfangsefnið sem þýðir að ólíkir aðilar geta haft mikið hagræði af notkun þess. Markaðurinn hefur jafnt og þétt verið að aukast fyrir slíkar heildarlausnir. Það eru komin sterk fasteignafélög með fjölda eigna í sinni umsjón. Auk þeirra eru í viðskiptahópi opinberar stofnanir, sveitarfélög, fjármálastofnanir, tryggingafélög, umboðs og söluaðilar, heilbrigðisstofnanir, flutningsfyrirtæki, þjónustuaðilar, verktakar, ráðgjafafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, olíufélög, orkufyrirtæki og veitufyrirtæki

Kerfi ICEconsult hérlendis og í Danmörku geymir gögn þúsunda mannvirkja, auk gagna um húskerfi, innbú, tölvuvélbúnað og fleiri gögn sem hundruðir þjónustuaðila og eigenda sýsla með daglega. Segja má að flestir stærri mannvirkjaeigendur á Íslandi nýti sér lausnir ICEconsult í dag með einum eða öðrum hætti. Flestir hafa byrjað með viðhaldslausnir en nú eru margir að taka upp fleiri verkferla eins og gæðaferli, orkuvöktun, skjalastjórnun, mannaflastjórnun og gæða- og öryggiseftirlit. Einnig eru tölvudeildir nokkura af stærstu fyrirtækjum landsins farnar að nýta sér Stjóralausnirnar við þjónustu sína í sama kerfi og í samvinnu við þá aðila sem sjá um að þjónusta mannvirki þessara sömu fyrirtækja.
ICEconsult - Mörkinni 6 - 108 Reykjavík - S. 564 2727. ICEconsult Danmark - Skoleholmen 19-21 - DK 2670 Greve - Danmark